Urridaholt
Urriðaholt
Finna þarf farveg fyrir rigningu og snjóbráð frá þökum, götum og görðum til þess að forðast flóð og vatnstjón í þéttbýli. Í æ ríkara mæli er horft til sjálfbærra lausna sem miðla vatni í náttúrulega farvegi. Urriðaholt í Garðabæ er fyrsta hverfið á Íslandi hannað með tilliti til sjálfbærra ofanvatnslausna sem stuðla að því að nægilegt vatn berist í Urriðavatnið.
Rannsóknin „sjálfbær regnvatnsstjórnun í köldu loftlsagi“ hlaut 3 ára styrk úr verkefnissjóði Rannís árið 2018. Markmið rannsóknarinnar er að skilja betur snjóbráð og ísig vatns þar sem er tíð frost og þýða. Niðurstöður munu gegna lykilhlutverki í að tryggja farsæla hönnun og rekstur ofanvatnskerfa í þéttbýli í köldu loftslagi.
Gróðurrásir í Urriðaholti taka við umframvatni og beina því í grunnvatn og að Urriðavatni.
Rannsóknarmiðstöðin í Urriðaholti
Garðabær, Urriðaholt ehf.,Veðurstofa Íslands, og Háskóli Íslands, undirrituðu samstarfssamning um uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvar á sviði blágrænna regnvatnslausna í Urriðaholti í Garðabæ í maí 2018. Urriðaholtið verður rannsóknarvettvangur fyrir vísindalegar rannsóknir á blágrænum regnvatnslausnum, og miðla niðurstöðum úr þeirri vinnu jafnt innan- og utanlands. Í lok árs 2018 reis ný veðurstöð fyrir Urriðaholt, gögnin má nálgast hér.
Vettvangsrannsóknir 2018 -2020
- Samfelldar mælingar á jarvegsraka og hita
- Mánaðarlegar ísigstilraunir, sem meta getu jarðvegs að taka við vatni og miðla í grunnvatn
- Gerviflóð mæld í gróðurrásum
- Mælingar á snjóþykkt, eðlisþyngd, leiðni
Rannsóknarteymið
- Dr. Hrund Ó. Andradóttir, prófessor og verkefnisstjóri HÍ
- Tarek Zaqout, doktorsnemi HÍ
- Dr. Johanna Sörensen, póst-doc HÍ/Lund
- Anna Rut Arnardóttir, MS. Ritgerð hennar fjallar um veður- og yfirborðsaðstæður sem valda flóði í þéttbýli og má nálgast á skemmunni.
- Bjarni Halldórsson, MS nemi.
- Vilhjálmur Sigurjónsson, tæknistjóri VoN
- Ólafur Arnalds, prófessor í LBHÍ
Þjálfun fagfólks
16 nemendur áhugasamir á umhverfismálum hafa fengið þjálfun í rannsóknaaðferðum beitt í þessum rannsóknum.
Rannsóknir í Urriðaholti voru hluti af námskeiðunum UMV vatnsgæði (vor 2019), og UMV602M Fráveitur og skólphreinsun (Vor 2018) við Háskóla Íslands.
Veturinn 2020 komu 7 BS nemendur og aðstoðuðu við feltvinnu, og fengu þannig innsýn í hvernig rannsóknir fara fram í felt, að hversu mörgu þarf að huga og hvernig oft getur verið erfitt að hrinda einfaldri hugmynd í framkvæmd utandyra.
Birtingar í alþjóðlegum vísindaritum
- Zaqout, T., Andradóttir, H.Ó. , and Sörensen, J. (samþykkt 2022). Trends in soil frost formation in a warming maritime climate and the impacts on urban flood risk, J. of Hydrology
- Zaqout, T., Andradóttir, H.Ó., and Arnalds, Ó. (2022). Infiltration capacity in urban areas undergoing frequent snow and freeze-thaw cycles: Implications on Sustainable Urban Drainage Systems, J. of Hydrology, 127495
- Zaqout, T. and Andradóttir, H.Ó. (2021). Hydrologic performance of grass swales in cold maritime climates: Impacts of frost, rain-on-snow and snow cover on flow and volume reduction, J. of Hydrology, 126159
- Andradóttir, H.Ó., Arnardóttir, A.R. and Zaqout, T. (2021). Rain on snow induced urban floods in cold maritime climate: Risk, indicators and trends, Hydrol. Proc., 14298
MS ritgerðir
Bjarni Haldórsson (2021). Influence of repeated freeze-thaw cycles on the infiltration of Icelandic Andosols. MS thesis, University of Iceland.
Anna Rut Arnardóttir. 2020. Winter Floods in Reykjavík: Coaction of Meteorological and Soil Conditions. Meistararitgerð, Háskóla Íslands